Sjá nánar.
Nauðsynlegt er að skrá alla nemendur í nám á Landspítala. Í nemakerfinu kemur fram hvenær og hvar á spítalanum nemendur eru í námi og haldið utan um að nemandi hafi undirritað þagnarheit og reglur um notkun sjúkraskrárupplýsinga.
Tölvuaðgangur er veittur og auðkenniskort útbúin samkvæmt upplýsingum úr kerfinu.
Nemendur sem koma inn á spítalann í skipulagt nám, t.d. frá Háskóla Íslands, eru skráðir samkvæmt upplýsingum þaðan og leitast er við að afgreiða öll undirskriftar- og aðgangsmál áður en þeir koma inn á spítalann. Nauðsynlegt er að tilkynna um nemendur sem koma á eigin vegum eða á annan hátt inn á spítalann (sjá hlekki neðar).
Nemendur hafa verið skráðir í nemaskráningarkerfið síðan árið 2010. Árið 2013 voru 1.530 nemendur skráðir, árið 2012 voru 1.532 nemendur, 1.359 árið 2011 og fyrsta árið voru 1.193 nemendur skráðir. Fjölgun nemenda er fyrst og fremst vegna aukinnar vakningar á mikilvægi skráningarinnar.
Upplýsingar varðandi skráningu nema, gátlisti, þagnarskylduskjöl o.fl.
Upplýsingar og umsóknarform fyrir íslenska nemendur sem eru í námi erlendis
Upplýsingar og umsóknarform fyrir erlenda nemendur (ENGLISH)
Upplýsingar um skráningu nemenda og aðgangsmál:
Sigrún Ingimarsdóttir, verkefnastjóri á menntadeild, vísinda- og þróunarsviði Landspítala, netfang sigruni@landspitali.is, sími 543 1475.