Samningar tókust í kjaradeilu Skurðlæknafélags Íslands og ríkisins aðfaranótt 8. janúar 2015 á fundi hjá ríkissáttasemjara.
Verkföllum sem boðuð voru dagana 12. til 15. janúar var um leið aflýst.
Samningar Lækningafélag Íslands og ríkisins voru undirritaðir sólarhring áður og fara báðir samningarnir nú til kynningar meðal lækna og síðan atkvæðagreiðslu.