MND félagið hefur fært taugalækningadeild B2 á Landspítala að gjöf þrjá hjólastóla af gerðinni Meyra Ortopedic. Einn þeirra er sérútbúinn hægindahjólastóll, hinir tveir flutningshjólastólar. Stólarnir eru frá Eirbergi. Guðjón Sigurðsson, formaður MND félagsins, afhenti gjöfina á aðventustund deildarinnar 19. desember 2014 með sr. Gunnari Rúnari Matthíassyni sjúkrahúspresti. Tvær ungar stúlkur léku þar á flautur, Iðunn Rún Kristjánsdóttir og Anna Rún Arnfríðardóttir.