Fagráð iðjuþjálfunar Landspítala hélt málþing föstudaginn 7. nóvember 2014 í tilefni alþjóðadags iðjuþjálfunar. Dagskráin var fjölbreytt og vel sótt. Erindi fjölluðu um þjónustuferli iðjuþjálfa á sjö starfsstöðvum á LSH, eiginleika þjónustuferlanna OTIPM og MOHO, notkunarmöguleika A-ONE matstækisins í tengslum við OTIPM og þróun A-ONE í ljósi líkansins um samspil vettvangsþátta. Tvö síðast nefndu erindin voru flutt af Guðrúnu Árnadóttur á heimsþingi iðjuþjálfa í Yokohama Japan í júní á þessu ári.