Heiða Björg Hilmisdóttir, næringarrekstrarfræðingur og deildarstjóri eldhúss og matsala á Landspítala, samdi uppskriftir í nýja bók í bókaflokknum Af bestu lyst sem Vaka-Helgafell gefur út. Laufey Steingrímsdóttir næringarfræðingur ritaði inngang að bókinni.
Heiða Björg og Laufey, báðar starfsmenn á Landspítala, gerðu bókina í samvinnu við Embætti landlæknis, Hjartavernd og Krabbameinsfélagið.
Í bókinni er ekki síst tekið mið af börnum og barnafjölskyldum og megináhersla lögð á spennandi mat sem sé í senn góður á bragðið og góður fyrir heilsuna, budduna og umhverfið.