Samsung og Síminn hafa fært Barnaspítala Hringsins að gjöf 10 Samsung spjaldtölvur. Tilefni gjafarinnar var heimsókn Young Lee, forstjóra Samsung Mobile í Evrópu, til landsins.
„Við hjá Símanum höfum eins og aðrir landsmenn fylgst með því frábæra starfi sem er unnið á Barnaspítalanum. Krakkar eru fljótir að tileinka sér nýja tækni og við vonum að spjöld með afþreyingu geti orðið til þess að létta þeim dvölina á spítalanum,“ segir Orri Hauksson, forstjóri Símans.
Leit
Loka