Á miðnætti aðfaranótt mánudagsins 17. nóvember 2014 hefst önnur lota verkfallsaðgerða Læknafélags Íslands. Læknar á kvenna- og barnasviði og læknar á rannsóknarsviði fara í tveggja sólarhringa verkfall og á sama tíma verða læknar á heilsugæslustöðvum og heilbrigðisstofnunum um landið í verkfalli. Að morgni þriðjudagsins 18. nóvember hefjast einnig verkfallsaðgerðir lækna í Skurðlæknafélagi Íslands.
Vakin er athygli á því að vegna verkfallsaðgerða á heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu gæti álag á bráðamóttökur Landspítala aukist. Þá mun verkfall á rannsóknarsviði hafa áhrif á aðgerðarsvið og skurðlækningasvið strax mánudaginn 17. nóvember.
Helstu áhrif verkfalla á rannsóknarsviði
Helstu áhrif verkfalla skurðlækningasviði
Helstu áhrif verkfalla á kvenna- og barnasviði
- Legudeildarstarfsemi tengd inniliggjandi sjúklingum og bráðainnlögnum á að vera óbreytt að mestu.
- Kvenskurðaðgerðum, sem ekki eru bráðar, verður frestað. Starfsemi Rjóðurs er óbreytt.
- Fæðingarþjónusta er að mestu óbreytt, nema hvað færa þarf til valkeisaraskurði og 5 daga nýburaskoðun nýburalækna fellur niður þessa daga.
- Göngudeild mæðraverndar verður lokuð nema bráðtilfellum verður sinnt og einnig verður móttaka þungaðra kvenna með sykursýki óbreytt (læknir er af lyflækningasviði).
- Fósturgreiningardeild tekur á móti konum sem koma í reglubunda skimun (12 og 20 vikur) og einnig vaxtarsónar (ljósmæður sinna þessari þjónustu eins og alltaf). Önnur starfsemi verður ekki.
- Göngudeild og dagdeild kvenlækninga er lokuð.
- Bráðamóttaka barna er opin eins og venjulega fyrir bráðakomur. Búast má við auknu álagi vegna þess að læknar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins eru einnig í verkfalli þessa daga.
- Göngudeild barna á Barnaspítala Hringsins verður að mestu lokuð. Göngudeildarstarfsemi sérfræðinga í hjúkrun er þó óbreytt þessa daga.
- Göngudeild BUGL sinnir bráðatilfellum. Einnig er óbreytt starfsemi hjá sálfræðingum, hjúkrunarfræðingum og öðrum fagaðilum þar sem læknar hafa ekki aðkomu að heimsókninni.
Helstu áhrif verkfalla á rannsóknarsviði
- Bráðatilvikum verður sinnt.
- Öllum skipulögðum rannsóknum frestað.
- Skurðaðgerðum, sem ekki eru bráðar og þar sem þörf er á skipulögðum rannsóknum í eða eftir aðgerð verður frestað.
Helstu áhrif verkfalla skurðlækningasviði
- Starfsemi bráðalegudeilda verður eins og um helgar. Öllum bráðatilvikum verður sinnt eins og venjulega þessa verkfallsdaga.
- Starfsemi á skurðstofum miðast við bráðastarfsemi.
- Göngudeildir skurðlækna verða lokaðar dagana 18-20. nóvember. Undir þær heyra göngudeild almennra skurðlækna (10E), göngudeild þvagfæralækninga (11A), göngudeild bæklunarlækninga (G3), göngudeild háls-, nef- og eyrnalækninga HNE (B3), göngudeild lýtalækninga (B3), göngudeild æðaskurðlækninga og göngudeild heila- og taugaskurðlækninga (B3). Göngudeildarkomur til annarra en lækna haldast óbreyttar.
- Ekki verður hægt að undirbúa sjúklinga fyrir aðgerð á innskriftarmiðstöð (10E og B3) verkfallsdagana. Símainnskrift svæfingarhjúkrunarfræðinga verður í eðlilegum farvegi.