Á miðnætti aðfaranótt 5. nóvember 2014 hefjast verkfallsaðgerðir Læknafélags Íslands á skurðlækningasviði og geðsviði Landspítala og lýkur þeim á miðnætti aðfaranótt föstudagsins 7. nóvember. Aðgerðir Skurðlæknafélags Íslands standa til kl. 16:00 fimmtudaginn 6. nóvember. Alls leggja 136 læknar niður störf þessa daga.
Helstu áhrif á geðsviði eru þessi:
Á geðsviði starfa 50 læknar og er gert ráð fyrir að 31 þeirra leggi niður störf.
- Bráðaþjónustu verður sinnt.
- Göngudeildarstarfsemi lækna liggur niðri og hefur ríflega 100 viðtölum verið frestað.
Helstu áhrif á skurðlækningasviði eru þessi:
Á skurðlækningasviði starfa 72 læknar sem eru félagsmenn í Læknafélagi Íslands og er gert ráð fyrir að 57 leggi niður störf. Alls eru 68 læknar í Skurðlæknafélagi Íslands og leggja 48 þeirra niður störf.
- Bráðaþjónustu verður sinnt.
- Starfsemi á skurðstofum og svæfingadeildum miðast við bráðastarfsemi.
- Göngudeildir skurðlækna verða lokaðar dagana 4.-6. nóvember. Undir þær heyra göngudeild almennra skurðlækna (10E), göngudeild þvagfæralækninga (11A), göngudeild bæklunarlækninga (G3), göngudeild háls-, nef- og eyrnalækninga HNE (B3), göngudeild lýtalækninga (B3), göngudeild æðaskurðlækninga og göngudeild heila- og taugaskurðlækninga (B3). Göngudeildarkomur til annarra en lækna haldast óbreyttar.
- Göngudeild augnlækninga (Ei 37) verður lokuð dagana 5. og 6. nóvember.