Eftirtaldir listamenn koma fram og styrkja verkefnið:
Bergþór Pálsson, Egill Ólafsson, Friðrik Ómar Hjörleifsson, Gissur Páll Gissurarson, Guðrún Gunnarsdóttir, Guðrún Árný Karlsdóttir, Jögvan Hansen, Kristján Jóhannsson, KK og Ellen, Matthías Matthíasson, Margrét Eir, Páll Rósinkranz, Regína Ósk Óskarsdóttir og Ragnar Bjarnason.
Undirleikarar: Jónas Þórir, Matthías Stefánsson, Óskar Einarsson og Þorgeir Ástvaldsson.
Kynnir: Gísli Einarsson.
Aðgöngumiðar kosta 4.000 krónur. Miðasala er til 12. nóvember hjá N1 Ártúnshöfða, Bíldshöfða og Gagnvegi, Olís Álfheimum og Gullinbrú og á Midi.is.
Þetta er tólfta árið í röð sem Lionsklúbburinn Fjörgyn í Grafarvogi stendur fyrir tónleikum sem þessum og aðsóknin hefur alltaf verið mikil. Lionsklúbburinn Fjörgyn hvetur alla, sem tök hafa á, að tryggja sér miða á tónleikana og hlýða á marga af bestu tónlistarmönnum landsins í einni stærstu kirkju landsins við mjög góðar aðstæður, um leið og stutt er við gott málefni.
Smella á myndina til að stækka hana