Sjúklingar og þeir sem eiga bókuð viðtöl eða rannsóknir á Landspítala eru hvattir að fylgjast með framvindu verkfallsins. Falli niður bókaður tími vegna verkfalls verður fundinn nýr tími síðar.
Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala, segist vona að viðsemjendur nái saman fyrir boðað verkfall en að spítalinn búi sig undir að bregðast við verkfallsáhrifum. Meginverkefni spítalans er að tryggja öryggi sjúklinga eftir því sem kostur er: „Við höfum þungar áhyggjur af yfirvofandi verkfalli lækna. Landspítali er ekki viðsemjandi þeirra en áhrif verkfallsins munu að líkindum vega þyngst hér. Enda þótt bráðatilvikum verði sinnt og verkfall Læknafélags Íslands raðist ekki á sama tíma á öll klínísk svið spítalans er starfsemin svo samantvinnuð að búast má við áhrifum verkfalls út yfir það svið sem verkfallið nær formlega til. Sem dæmi má nefna að verkfall á rannsóknarsviði hefur mikil áhrif á allar deildir spítalans sem reiða sig á þjónustu þess, t.d. vegna úrlestra á myndrannsóknum eða öðrum rannsóknum. Á skurðlækningasviði og aðgerðasviði má búast við að fresta þurfi aðgerðum og biðlistar lengist þar með. Þá má nefna að verkfall lækna á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins gæti haft umtalsverð áhrif þar sem búast má við að einhverjir telji sig þurfa að leita til bráðamóttöku Landspítala. Það er ástæða til að hafa af því sérstakar áhyggjur þar sem álag og biðtími þar er nú þegar umtalsverður. “