Ályktun læknaráðs Landspítala 17. október 2014 um yfirvofandi vinnustöðvun lækna á spítalanum:
Læknaráð Landspítala lýsir yfir miklum áhyggjum af stöðu lækninga á Landspítala. Mannekla er mikil á vissum sviðum og hafa margir sérfræðilæknar hætt störfum undanfarin ár, og tekið með sér sérþekkingu og hæfni sem erfitt er að bæta upp. Læknar Landspítalans hafa nú sinnt vinnu sinni án gildandi kjarasamnings í nær níu mánuði. Vegna ósamkeppnishæfra kjara hafa læknar boðað til vinnustöðvunar í kjarabaráttu sinni sem kemur til framkvæmdar eftir 7 daga ef ekki semst fyrir þann tíma. Ljóst er að vinnustöðvun lækna við Landspítala veldur mikilli truflun á starfsemi hans með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir sjúklinga og kemur til með að valda óöryggi og seinkun á meðferð þeirra.
Læknaráð Landspítala skorar á stjórnvöld að ganga frá kjarasamningi við lækna sem fyrst til að koma í veg fyrir þessa ógæfu.