„Í ljósi þeirrar áherslu sem við viljum leggja á Landspítala sem góðan og samfélagsábyrgan vinnustað var ánægjulegt að veita samgönguverðlaunum Reykjavíkurborgar viðtöku í dag fyrir hönd okkar allra. Viðurkenningin er veitt fyrir starf okkar í þágu vistvænna samgangna og helst í hönd við Hjólaskálina sem við fengum líka að viðurkenningu í dag. Hjólaskálin er veitt vegna hvatningar okkar til hjólreiða starfsfólks með ýmsum hætti meðal annars með samgöngustyrkjum sem við tókum upp í vor og uppbyggingu aðstöðu fyrir hjólafólk.“
Leit
Loka