Vilhjálmur Steingrímsson læknanemi hlaut verðlaun fyrir vísindaframlag sitt á International Workshop on Waldenström´s macroglobulenemia í Lundúnum helgina 15. til 17. ágúst 2014.
Verkefni Vilhjálms fjallar um áhrif fjölskyldusögu um eitilfrumusjúkdóma á horfur einstaklinga með eitilfrumukrabbameinið Waldenströms macroglobulinemia. Í rannsókninni, sem byggð er á gögnum yfir 2000 sjúklinga og rúmlega 6000 ættingja þeirra, sýndu Vilhjálmur og félagar fram á að horfur sjúklinga með ættarsögu um eitilfrumukrabbamein voru marktækt verri, borið saman við sjúklinga án ættarsögu. Vilhjálmur hélt erindi á fundinum um rannsókn sýna við mjög góðar undirtektir.
Vilhjálmur vinnur í rannsóknarhópi Sigurðar Yngva Kristinssonar, prófessors við læknadeild HÍ. Rannsóknin hlaut styrk Vísindasjóðs LSH.