Von, félagi til styrktar skjólstæðingum gjörgæsludeildar Landspítala Fossvogi, hefur borist peningagjöf að upphæð 100.000 krónur. Gjöfin var frá sumarferð starfsmanna gjörgæsludeildarinnar 2014. Ferðin í ár var sú 19. í röðinni. „Allir eru sammála um að þessar ferðir séu bætandi fyrir starfsandann á deildinni og ekki síður líkama og sálir þátttakenda,“ segir stjórn Vonar og þakkar stuðning og hlýjan hug.
Vefur Vonar styrktarfélag