Hópur frá Karlasmiðjunni, undir stjórn Andra Bjarnasonar, sálfræðings og verkefnastjóra, kom færandi hendi á Barnaspítala Hringsins 22. júlí 2014. Hópurinn gaf 306 þúsund krónur til að bæta leikstofuna og var þakkað framlagið og hlýhugurinn til spítalans.