Rúmar 15 milljónir króna söfnuðust með Wow Cyclothon áheitahjólreiðakeppninni 24. til 27. júní 2014. Áheitaféð hefur verið afhent bæklunarskurðdeild Landspítala og verður notað til tækjakaupa. Keyptur verður C-bogi til aðgerða á útlimabrotum sem mikil þörf hefur verið fyrir. Þátttakendur í WOW Cyclothon voru 520 talsins í 63 liðum. Hjólakraftur leiddi áheitasöfnunina en það er tíu ungmenna hópur. Hann var settur á fót fyrir börn og unglinga erfiðri baráttu við lífstílssjúkdóma.
Leit
Loka