Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra, ásamt Páli Matthíassyni, forstjóra Landspítala og Brynjólfi Bjarnasyni, formanni stjórnar Söfnunarsjóðsins, staðfestu 26. júní 2014 með undirritun samkomulag um fjármögnun þjarkans. Áætlað er að þjarkinn verði tekinn í notkun í vetur. Við það tækifæri afhenti Pokasjóður 25 milljónirnar sem upp á vantaði til að festa kaup á aðgerðarþjarkanum. Með því framlagi lýkur söfnuninni sem staðið hefur undanfarin tvö ár með þátttöku fjölda fyrirtækja, samtaka og einstaklinga.
Á síðustu árum hefur svokallaður aðgerðarþjarki (róbót) verið tekinn í notkun á helstu sjúkrahúsum í nágrannalöndunum. Búnaðurinn nýtist til margvíslegra skurðaðgerða, sérstaklega þó við þvagfæraskurðlækningar sem og aðgerðir á grindarholslíffærum kvenna. Aðgerðir með þessari aðferð eru inngripsminni en ella, bati er skjótari og hægt að hlífa betur nærliggjandi líffærum og viðkvæmri starfsemi. Í raun er um að ræða framlengingu á fingrum skurðlæknisins. Allar hreyfingar verða nákvæmari og sýn skurðlæknisins á aðgerðarsvæðinu framúrskarandi. Með þessari mikilvægu viðbót við tækjabúnað Landspítala er landsmönnum tryggð sambærileg þjónusta og til boða stendur í nágrannalöndum okkar og er um að ræða fyrstu meiri háttar nýjung í skurðaðgerðum á Íslandi frá aldamótum. Ekki er síður mikilvægt að með tilkomu tækisins koma til landsins íslenskir skurðlæknar sem hlotið hafa þjálfun á þessu sviði.
Að athöfninni í K-byggingu 26. júní komu, auk fleiri gesta:
Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra.
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala.
Eiríkur Jónsson, yfirlæknir þvagfæraskurðlækningadeildar
Lilja Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri skurðlækningasviðs Landspítala
Brynjólfur Bjarnason, formaður stjórnar Söfnunarsjóðs aðgerðarþjarkans
Bjarni Finnsson, formaður stjórnar Pokasjóðs
Stjórn Söfnunarsjóðsins:
Brynjólfur Bjarnason, formaður
Ólafur Nilsson
Emma R. Marinósdóttir
Ragna Árnadóttir
Ágúst Jóhannesson
Stjórn Pokasjóðs:
Bjarni Finnsson, formaður
Höskuldur Jónsson
Finnur Árnason
Ómar Valdimarsson
Um Söfnunarsjóðinn
Um Pokasjóð