Birta á heimasíðu og facebook síðu spítalans.
Kv,
Margrét Ásgeirsdóttir, deildarastj skilunardeildar
Skilunardeild Landspítala fékk nýlega að gjöf 60 heyrnatól til afnota fyrir sjúklinga deildarinnar. Gefandinn er Sigfús Sveinsson sem þannig vildi sýna þakklæti sitt fyrir góða umönnun á umliðnum árum. Heyrnartólin voru keypt í Tölvulistanum sem jafnframt veitti góðan afslátt. Heyrnartólin munu nýtast sjúklingum deildarinnar vel en þeir mæta í blóðskilun þrisvar sinnum í viku að meðaltali í 4 klukkustundir í senn. Við afhendinguna færði starfsfólk deildarinnar Sigfúsi og börnum hans innilega þakkir fyrir rausnarskapinn.