„Vinnuhópur á vegum framkvæmdastjórnar hefur það verkefni að rýna þessar tölur og leggja fram skýrar tillögur til úrbóta. Óútskýrt launamisrétti verður ekki liðið á Landspítala og höfum við nú þegar ákveðið að efla jafnréttisnefnd spítalans til að gera okkur öllum betur kleift að takast á við vandann.“
Páll Matthíasson fjallar í forstjórapistli um mikið álag á spítalanum að undanförnu, nýja geðgjörgæsludeild og launamisrétti.