Ánægja starfsmanna með matsali Landspítala hefur aukist um 50% frá 2013 til 2014, samkvæmt niðurstöðu þjónustukönnunar sem send var öllum starfsmönnum með netfang. Alls svöruðu 1.275 af 4.448 eða 28% starfsmanna.
Helstu niðurstöður eru að nú eru 57% ánægðir eða mjög ánægðir með matsali en voru fyrir ári einungis 38%. Um fjórðungur svarenda er hlutlaus eins og áður.
Starfsmenn eldhúss og matsala eru nú að greina niðurstöður frekar og þakka öllum sem tóku þátt í könnuninni sem skipti máli til gert matsalina enn betri.