Frá lyflækningasviði:
Greinst hefur MÓSA smit á smitsjúkdómadeild (deild A7) á Landspítala Fossvogi. Smitið nær til sjúklinga, starfsmanna og umhverfis (vinnusvæði og sjúklingsvæði) deildarinnar. Gripið hefur verið til viðeigandi ráðstafana til að takmarka frekari útbreiðslu innan spítalans og upprætingar smitsins. Þetta felur m.a. í sér að loka þarf deildinni fyrir innlögnum sjúklinga og heimsóknum til sjúklinga. Unnið er hörðum höndum að því að útskrifa sjúklinga sem unnt er til að greiða fyrir innlögnum nýrra sjúklinga. Ljóst er að tafir verða á eðlilegri starfsemi lyflækningasviðs þar sem legurými spítalans er takmarkað en lokun A7 fyrir innlagnir hefur leitt til tafa við innlagnir nýrra sjúklinga.
Fólk sem leitar til spítalans er beðið um að sýna starfsmönnum biðlund ef tafir verða á innlögnum. Sjúklingar og ættingjar eru beðnir um að sýna skilning og veita stuðning við útskriftir.