Félagsmenn í Kiwanisklúbbnum Heklu hafa, í tilefni af 50 ára afmæli klúbbsins, fært sjúkraþjálfun á Grensási að gjöf styrktarþjálfunartæki. Um er að ræða HUR styrktarþjálfunartæki sem eru sérstaklega hönnuð með endurhæfingu í huga.
Gjafirnar voru afhentar 13. maí 2014. Gefendum var þökkuð gjöfin sem kemur í mjög góðar þarfir og bætir úr brýnni þörf við þjálfun sjúklinga deildarinnar.
Gjafirnar voru afhentar 13. maí 2014. Gefendum var þökkuð gjöfin sem kemur í mjög góðar þarfir og bætir úr brýnni þörf við þjálfun sjúklinga deildarinnar.