Línuhraðallinn er stórt og dýrt tæki og gjafir gerðu kleift að ráðast í kaupin. Samkvæmt samningi um kaup á línuhraðli, með eftirlits- og skráningarkerfi og takmörkuðu en sérhæfðu geislaáætlanakerfi, var kaupverð um 450 milljónir króna. Þjóðkirkjan var ötul í söfnunarátaki sem farið var í til tækjakaupanna, einnig Blái naglinn og fjöldi annarra félagasamtaka og einstaklinga. Full ástæða er til að þakka öllum þeim sem studdu þessi tækjakaup.
Geislameðferð gegnir veigamiklu hlutverki í meðferð krabbameina. Áætlað er að þriðji hver einstaklingur í vestrænum þjóðfélögum greinist með krabbamein á ævi sinni og þurfa um 50% þeirra á geislameðferð að halda. Á árinu 2013 komu meira en 600 sjúklingar til geislameðferðar á Landspítala og hefur þeim sem fara í slíka meðferð hér á landi fjölgað ár frá ári. Við geislameðferð og undirbúning hennar vinna saman ólíkar starfsstéttir að sérhæfðum verkum m.a. læknar, eðlisfræðingar, hjúkrunarfræðingar og geislafræðingar.
Línuhraðalar hafa gegnt stóru hlutverki í geislameðferð frá miðri síðustu öld og hafa á undanförnum árum orðið veigamiklar framfarir í tækni þeirra hvað varðar nákvæmni og öryggi. Fyrsti línuhraðall Íslendinga var keyptur til landsins árið 1987 eftir söfnun á vegum Lionshreyfingarinnar og þegar sérhæfð aðstaða skapaðist fyrir slíkt tæki í K-byggingu Landspítala. Nú eru tvö slík tæki í notkun í K-byggingu, nýja tækið sem nú er fagnað og eldra tæki sem keypt var árið 2004.
Samhliða tækniframförum í geislameðferð hafa orðið mikilvægar framfarir í greiningu krabbameina sem oft gefa betri kost en áður á læknandi meðferð á fyrri stigum í þróun sjúkdóms. Þekking manna á áhrifum geislunar á krabbameinsæxli og einnig á aðliggjandi heilbrigðan vef hefur aukist. Nú er í mörgum tilvikum unnt að beita geislalækningum með auknum árangri og um leið með minni aukaverkunum. Ljóst er að þessi þróun heldur áfram og er mikilvægt að íslenskt heilbrigðiskerfi eigi kost á að vera með á þeirri vegferð.
Nýja tækið gefur kost á umtalsvert nákvæmari innstillingu á geisla gegn meðferðarsvæði með myndgerðarbúnaði sem gefur aukna möguleika á myndstýrðri meðferð (Image Guided Radiation Therapy). Með tækinu er unnt að gefa snúningsmeðferð (Rapidarc) sem gefur kost á jafnari og betri geisladreifingu í líkamsvefjum en áður var unnt að bjóða upp á. Einnig skapast möguleiki á öndunarstýrðri meðferð (respiratory gating) og hnitamiðaðri geislun (stereotactic radiation). Reyndar þarf að fylgja fjárfestingu í nýja tækinu eftir með frekari þróun búnaðar sem styður við þær framfarir sem hér hafa verið nefndar. Um er að ræða tæknilega möguleika sem samkvæmt uppgjöri á árangri í geislameðferð hjá stærri deildum meðal fjölmennari þjóða skila bættum árangri í geislameðferð krabbameinssjúklinga.