„Sölvi Oddsson er ungur svæfingalæknir sem er í miklum metum á gjörgæsludeild Landspítalans, bæði meðal samstarfsfólks og sjúklinga. Hann helgar sig starfinu og er alltaf reiðubúinn að taka aukavaktir en fjarlægist eiginkonu og börn á merkjavæddu heimili í Garðabæ. Smám saman fer álagið að segja til sín og þegar mörkin milli þess að líkna og valda sársauka taka að dofna verður eitthvað undan að láta.“ (Lífsmörk, bókarkápa)
Mál og menning hefur gefið út skáldsöguna Lífsmörk eftir Ara Jóhannesson, sérfræðing í lyflækningum á Landspítala. Þetta er fyrsta skáldsaga Ara en hann hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2007 fyrir ljóðabókina Öskudaga. „Lífsmörk er fyrsta skáldsaga hans, einlæg og margslungin þroskasaga full af andstæðum; gálgahúmor og djúpri alvöru, sælu og sársauka, fjötrum og flugi himbrimans", stendur á bókarkápu.“