„Nýlega sást einstakt dæmi um fórnfýsi, gjafmildi og samfélagsábyrgð starfsmanna sjúkrahússins“, segir Páll Matthíasson í forstjórapistlinum um gjöf Starfsmannafélags Landspítala til spítalans. Félagsmenn seldu skó og færðu spítalanum andvirðið til tækjakaupa.
Forstjórinn vekur líka athygli á ársfundi Landspítala 2014 sem verður 6. maí og haldinn með nýju sniði.