„Uppbygging í augsýn“ er yfirskrift málþings á ársfundi Landspítala 2014.
Ársfundurinn verður á Hótel Hilton í Reykjavík þriðjudaginn 6. maí kl. 13:00 til 16:00.
Allir eru velkomnir á ársfundinn.
Dagskrá málþingsins
Öruggur spítali – góður vinnustaður
- Sigríður Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar og Bryndís Hlöðversdóttir starfsmannastjóri
Skilvirkir verkferlar – ábyrgur rekstur
- Benedikt Olgeirsson aðstoðarforstjóri og María Heimisdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Spítalinn okkar – landssamtök um uppbyggingu nýs húsnæðis Landspítala
- Anna Stefánsdóttir formaður
Umræður og fyrirspurnir