Blóðlækningadeild 11G á Landspítala hefur fengið að gjöf fjórar nýjar dýnur og tvær yfirdýnur.
Gjöfin er til minningar um Sólveigu Indriðadóttur sem lést á deildinni í ársbyrjun 2014. Aðstandendur hennar vildu sýna þakklætisvott til deildarinnar með gjöfinni.
Eiginmaður Sólveigar og börn afhentu gjöfina og var þökkuð hugulsemin.