Vildarbörn Icelandair hafa fært börnum sem dvelja á barna- og unglingageðdeild Landspítala, BUGL, nokkrar Apple spjaldtölvur að gjöf.
Velunnari gaf Vildarbarnasjóðnum tölvurnar með ósk um að þær yrðu nýttar þar sem mikil þörf væri á. Í framhaldi af því var ákveðið að afhenda þær barna- og unglingageðdeildinni.
Markmið sjóðsins Vildarbörn Icelandair er að gefa langveikum börnum, foreldrum þeirra og systkinum tækifæri til þess að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á og alls hefur 431 fjölskylda notið stuðnings frá stofnun hans.
Sjóðurinn er meðal annars fjármagnaður með beinu fjárframlagi Icelandair, frjálsum framlögum félaga í Saga Club Icelandair og með söfnun myntar um borð í flugvélum Icelandair. Starfsemin byggir á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, eiginkonu Sigurðar Helgasonar, sem lengi var forstjóri Flugleiða og er nú stjórnarformaður Icelandair Group. Peggy hefur um árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti. Hún situr í stjórn Vildarbarna Icelandair og Sigurður er formaður stjórnarinnar.
Á myndinni:
Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir, yfirlæknir göngudeildar BUGL
Dóra Elín Atladóttir, forstöðumaður Vildarbarna Icelandair
Linda Kristmundsdóttir, deildarstjóri göngudeildar BUGL
Vilborg G. Guðnadóttir, deildarstjóri legudeildar BUGL