Rúmlega 30 félagar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands flytja starfsfólki Landspítala og sjúklingum úrval skemmtilegra laga föstudaginn 4. apríl 2014 í K-byggingu við Hringbraut.
Tónleikarnir hefjast kl. 10:00 og verða um það bil hálfrar klukkustundar langir. Allir eru velkomnir.
Hljómsveitin verði líka með tónleika á leikstofu Barnaspítala Hringsins. Þeir hefjast kl. 11:00 sama dag.