Mikil spurn er þessa dagana eftir þjónustu Landspítala og rúmanýting vel yfir 100%. Á þessu er engin ein skýring heldur eru vandamálin margvísleg.
Framkvæmdastjórn spítalans kom saman í hádeginu til þess að bregðast við vandanum. Viðbótarstarfsfólk hefur verið kallað til á bráðadeildum og legudeildum. Þar sem allar deildir eru fullar, að meðtöldum bráðadeildum og gjörgæsludeildum, var ákveðið að fresta aðgerðum og rannsóknum, bæði varðandi skurðlækningar og lyflækningar. Einnig verður leitast við að flýta blóðrannsóknum á legudeildum til þess að greiða fyrir útskriftum.
Þeim tilmælum er vinsamlega beint til fólks að leita fremur til heilsugæslunnar og Læknavaktarinnar en bráðamóttöku Landspítala, nema brýna nauðsyn beri til.
Fulltrúar úr framkvæmdastjórn spítalans munu koma saman daglega þar til plássastaðan er komin í viðunandi horf.
Landspítali yfirfullur
Frá framkvæmdastjórn Landspítala: