Eigendur Myconceptstore, Eiríkur Aðalsteinsson og Heiða Björg Bjarnadóttir, komu færandi hendi 10. mars 2014 og gáfu deildum Barnaspítalans og Rjóðri dýraljós og loftbelgi. Synir þeirra, Dagur 7 ára og Breki 10 ára, afhentu deildarstjórum Barnaspítalans gjöfina.
Þau hjón hafa verið að selja SEVA armbönd og látið eitt þúsund krónur af hverju seldu armbandi renna til góðs málefnis, Barnaspítalans og Rjóðurs að þessu sinni.
Þau hjón hafa verið að selja SEVA armbönd og látið eitt þúsund krónur af hverju seldu armbandi renna til góðs málefnis, Barnaspítalans og Rjóðurs að þessu sinni.