Fulltrúar Félags heilbrigðisritara mættu á öldrunarlækningadeild B4 í Fossvogi 5. mars 2014 með í farteskinu 42 tommu sjónvarpstæki sem þeir færðu deildinni að gjöf frá félaginu. Það á eftir að koma mörgum vel og stytta stundirnar. Gefendum var því vel fagnað og þeim þökkuð hugulsemin. Félagsmenn í Félagi heilbrigðisritara eru víðs vegar að af landinu.