Liðið sem kallar sig Dætur Jordans er gamalgróið og hafa sumar í því æft vikulega frá upphafi eða frá 1990. Í liðinu eru 20 konur, úr ýmsum starfshópum og á öllum aldri. Æfingar eru á föstudögum kl. 17:00 Íþróttahúsi Verslunarskólans og þjálfari er fyrrverandi landsliðskona í körfubolta, Gunnhildur Gunnarsdóttir.
Á upphafsárum, þegar Dæturnar voru yngri, tók liðið þátt í ýmsum mótum þar sem áhugasamar konur öttu kappi. Í lok síðustu aldar, eða 1998, dreif liðið sig til Ísafjarðar og keppti við kvennalið sjúkrahússins þar en þá var þjálfarinn Lúðvík Jóelsson á svipunni. Nokkrar Akureyrarferðir eru í sögunni og þátttaka í firmakeppni. Því miður er enn ekki keppt í körfubolta á Norrænu sjúkrahúsleikunum sem haldnir eru á tveggja ára fresti en þar gætu Dætur Jordans sannarlega leikið listir sínar. Kvenkyns starfsmenn LSH sem eru í Starfsmannafélagi Landspítala eru boðnar velkomnar á æfingar og munið að aldurinn er engin afsökun.
Á þessum tímamótum, eftir 24 ára þrotlausar æfingar, viljum við þakka íþróttafélaginu sáluga á Landspítala og nú íþróttanefnd Starfsmannafélags Landspítala fyrir stuðninginn í tæpan aldarfjórðung.
Líklega eru gleðin, vináttan og félagsskapurinn okkar aðalsmerki.
Hraust sál í hressum líkama.
Kveðja
Dætur Jordans