Útbúið hefur verið kynningarmyndband um rekstrarsvið, eins og ákveðið var í tengslum við stefnumótun sviðsins fyrir árið 2013-2014.
Megintilgangur myndbandsins er að kynna starfsemi sviðsins á mannlegan og líflegan hátt þar sem starfsfólk er í forgrunni. Kynningarmyndbandið á jafnframt að gefa starfsfólki Landspítala yfirsýn og auka þekkingu þess á hlutverki rekstrarsviðs. Hvað gerir rekstrarsvið, hvernig og hvaða fólk vinnur verkin?