Steven Narod með fyrirlestur um brjóstakrabba og BRCA1
„Treatment considerations for women with breast cancer and a BRCA1 mutation“ er yfirskrift fyrirlesturs Steven Narod í Hringsal, Landspítala Hringbraut, föstudaginn 14. febrúar 2014. Fyrirlesturinn hefst kl 15:00.
Steven Narod er forstjóri Familial Breast Cancer Research Unit hjá Women's College Research Institute og prófessor við Lana School of Public Health og Department of Medicine í Torontoháskóla í Kanada.
Á undan fyrirlestrinum verður boðið upp á kaffi.