Caritas á Íslandi safnaði 800 þúsund krónum til styrktar bráðageðdeild Landspítala með tónleikunum sem voru haldnir 24. nóvember 2013 í Kristkirkju. Þetta voru árlegir styrktartónleikar Caritas á Íslandi sem að þessu sinni var ákveðið að helga geðgjörgæsludeildinni sem verður opnuð í lok febrúar. Nokkrir af fremstu tónlistarmönnum landsmanna lögðu málefninu lið. María Einisdóttir, framkvæmdastjóri geðsviðs, tók nýverið við fénu sem safnaðist.