Ein eining fyrir kviðsjáraðgerðir felur í sér margvíslega flókinn búnað og kostar tæplega 9 milljónir króna. Líf styrkti kvennadeildina með því að greiða fyrir helming kviðsjárstæðunnar en Landspítali lagði til helming fjármagnsins. Einnig var gefið höfuðljós til notkunar við margvíslegar aðgerðir í kvenlækningum. Andvirði ljóssins er um 1,3 milljónir króna.
Lilja Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri skurðlækningasviðs, þakkaði góðar gjafir og áréttaði hversu mikilvægt það er fyrir spítalann á þessum samdráttartímum að hafa góða styrktaraðila að baki sér.
Á ljósmynd:
Áslaug Svavarsdóttir, deildarstjóri skurðstofu kvennadeildar, María Hrönn Magnúsdóttir, Kristín Jónsdóttir, yfirlæknir kvenlækninga, Guðmundur Hjartarson, Eva María Hallgrímsdóttir og Hilda Friðfinnsdóttir, öll í stjórn Lífs, Lilja Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri skurðlækningasviðs LSH og Aðalbjörn Þorsteinsson, yfirlæknir svæfinga á skurðstofu kvennadeildar.