Árið 2013 voru 1.527 nemendur skráðir í nemaskráningarkerfi Landspítala. Nemendur í námi á framhaldsskólastigi voru 294, háskólanemendur í grunnnámi 862 og háskólanemendur í framhaldsnámi 371. Erlendir nemendur voru 70 talsins. Nánar hér
Nauðsynlegt er að skrá alla nemendur í nám á Landspítala. Í nemakerfinu kemur fram hvenær og hvar á spítalanum nemendur eru í námi og haldið utan um að nemandi hafi undirritað þagnarheit og reglur um notkun sjúkraskrárupplýsinga. Tölvuaðgangur er veittur og auðkenniskort útbúin samkvæmt upplýsingum úr kerfinu.
Nemendur sem koma inn á spítalann í skipulagt nám, t.d. frá Háskóla Íslands, eru skráðir samkvæmt upplýsingum þaðan og leitast er við að afgreiða öll undirskriftar- og aðgangsmál áður en nemendur koma inn á spítalann. Nauðsynlegt er að tilkynna um nemendur sem koma á eigin vegum eða á annan hátt inn á spítalann (sjá neðar).
Árið 2012 voru 1.532 nemendur skráðir í kerfið, árið 2011 voru 1.359 nemendur skráðir og 1.193 nemendur árið áður. Fjölgun nemenda fyrstu árin er fyrst og fremst vegna aukinnar vakningar á mikilvægi skráningarinnar.
Upplýsingar varðandi nemendur í námi á Íslandi
Upplýsingar og umsóknarform fyrir íslenska nemendur sem eru í námi erlendis
Upplýsingar og umsóknarform fyrir erlenda nemendur (English)
Upplýsingar um skráningu nemenda og aðgangsmál:
Sigrún Ingimarsdóttir, verkefnastjóri á menntadeild á vísinda- og þróunarsviði Landspítala
sigruni@landspitali.is, sími 543 1475.