Margrét Lára Viðarsdóttur landsliðskona í fótbolta mætti, ásamt fleiri landsliðskonum í fótbolta og handbolta, á Barnaspítala Hringsins 23. janúar 2014 og afhenti 400 þúsund krónur að gjöf. Þetta var ágóði af fótbolta- og handboltaleik til góðgerðarmála sem efnt var til í íþróttahúsi Vals að Hlíðarenda 27. desember 2013. Þar öttu kappi kvennalandsliðin í handknattleik og knattspyrnu. Það kostaði 500 krónur inn og var ákveðið að ágóðinn yrði færður Barnaspítala Hringsins.
Leit
Loka