Félagar í Soroptimistaklúbbi Seltjarnarness komu nýlega færandi á hendi á barna- og unglingageðdeild Landspítala, BUGL. Þeir höfðu safnað 500 þúsund krónum til styrktar BUGL sem kemur sér vel. Söfnunarfénu verður varið til að auka fræðsluefni fyrir fjölskyldur barna með geðræna erfiðleika.