Styrkirnir einskorðast við doktorsnema og leiðbeinendur við Háskóla Íslands og úrvinnslu gagna öldrunarrannsóknar Hjartaverndar (AGES-RS I og II) og gögn sem tengja mætti þeirri rannsókn. Doktorsneminn fær starfsaðstöðu við RHLÖ að Ægisgötu 26 og skal vinna rannsóknina þar. Auk styrksins, sem nemur 265.000 krónum á mánuði í 3 ár, veitir rannsóknarstofan sérstakan stuðning við tölfræðilega úrvinnslu.
AGES RS rannsókninni hefur verið lýst í greininni
Age, Gene/Environment Susceptibility-Reykjavik Study: multidisciplinary applied phenomics. Harris TB, Launer LJ, Eiriksdottir G, Kjartansson O, Jonsson PV, Sigurdsson G, Thorgeirsson G, Aspelund T, Garcia ME, Cotch MF, Hoffman HJ, Gudnason V. Am J Epidemiol 2007;165(9):1076-87.
Doktorsnemi og leiðbeinandi geta komið frá hvaða námsbraut sem er innan Háskóla Íslands. Doktorsneminn þarf að leggja fram áætlun um doktorsnám sem samþykkt hefur verið af rannsóknarnefnd öldrunarrannsóknar Hjartaverndar og viðkomandi háskóladeild.
Leibeinendur doktorsnema við Háskóla Íslands geta sótt um styrk fyrir doktorsnemaverkefni með því fororði að doktorsnemi við Háskóla Íslands taki við verkefninu innan sex mánaða frá veitingu styrks.
Sjálfseignarstofnun St. Jósefsspítala hefur hug á að efla doktorsnám á sviði öldrunarfræða með ofangreindum hætti með árlegum styrkveitingum. Með þessum hætti er vonast eftir því að lifandi samfélag myndist um öldrunarrannsóknir þar sem doktorsnemar geta haft stuðning hver af öðrum auk góðrar starfsaðstöðu.
Umsóknir verða metnar af sjálfstæðri vísindanefnd á vegum vísinda-, og þróunarsviðs Landspítala á samkeppnisgrunni. Umsóknarfrestur rennur út 15. febrúar 2014. Styrkveiting verður í lok maí 2014 við sérstaka athöfn.
Frekari upplýsingar veitir Pálmi V. Jónsson prófessor, formaður stjórnar Sjálfseignarstofnunar St. Jósefsspítala, sími 543 9410, netfang palmivj@landspitali.is, og skal rannsóknaráætlun send til hans.