Tónlistarmenn og rithöfundar líta annað slagið á leikstofuna á Barnaspítala Hringsins til þess að skemmta krökkunum.
Nýverið kom Agnes Wild og las upp úr bók sinni um súrsætu skrímslin.
Heiðar Örn og Þröstur sungu nokkur lög fyrir börnin í tengslum við bók Agnesar.
Allir höfðu mjög gaman af og skemmtu sér vel.