Fjörgynjarmenn hafa stutt við BUGL í 11 ár með margvíslegum hætti og ber þar hæst rekstur bílanna tveggja. Þeir voru teknir á rekstrarleigu hjá Íslandsbanka í desember 2007 til þriggja ára og þegar sá samningur rann út keypti klúbburinn þá og færði BUGL að gjöf. Með fjáröflun og stuðningi frá Sjóvá og N1 hefur Lionsklúbburinn Fjörgyn rekið bílana síðan.
Með samningi sem undirritaður var 22. nóvember 2013 tryggja Fjörgynjarmenn sér áframhaldandi stuðning Sjóvár og N1 við rekstur BUGL bílanna næstu þrjú árin. Sjóvá leggur til ábyrgðar- og kaskótryggingu og N1 eldsneyti á þá.
Bílarnir tveir hafa nýst afar vel í starfi BUGL. Stærri bíllinn er 9 manna og notaður til þess að fara með krakkana í hinar ýmsu ferðir en sá minni er fyrir vettvangsteymi sem fara heim til fjölskyldna og vinna með börnin í nærumhverfi.
„Þakklæti starfsfólks og vissan um að bílarnir eru nær ómissandi í því góða starfi sem BUGL vinnur er okkur næg umbun og það er alltaf af mikilli gleði sem við leggjum okkur fram í stuðningi við barna- og unglingageðdeildina“, segja Lionsmennirnir í Fjörgyn.
Í klúbbnum er fjögurra manna hópur sem gengur undir nafninu „litla BUGL nefndin“. Á henni hvílir mikið starf varðandi stuðninginn við barna- og unglingageðdeildina. Þar á meðal er að undirbúa, ásamt öðrum klúbbfélögum, árlega aðventustórtónleika í Grafarvogskirkju þar sem margir af bestu tónlistarmönnum þjóðarinnar gefa vinnu sína í þágu málefnisins.
Stuðningur Fjörgynjarmanna við BUGL birtist í mun fleiru en bílarekstrinum. Hér eru nokkur dæmi um það sem þeir hafa fært starfseminni við Dalbraut að undanförnu:
Tveir skjávarpar og sýningartjöld
Flatskjár og ferðatölvur
Stór og öflug kaffivél
Fullkomið mynd- og hljóðupptökutæki sem notað er í viðtölum til greiningar eftir á
Húsgögn í fjölskylduherbergi
Ipad spjaldtölvur
Húsgögn í útigarðinn
Íslandskort