Salsadans til styrktar Barnaspítala Hringsins
SalsaIceland verður með "góðgerðardag" 30. nóvember 2013 til styrktar Barnaspítala Hringsins. SalsaIceland er félag áhugafólks um salsa á Íslandi og salsadansskóli. Hann hóf í fyrra að vera með sérstakan góðgerðadag til styrktar góðum málefnum og hélt í þeim tilgangi flóamarkað. Nú var ákveðið að vera með annan slíkan og dansa til styrktar barnaspítalanum. Boðið verður upp á alls konar danstíma í stúdíóinu að Grensásvegi 12a. Um kvöldið verður ball og veglegt happdrætti meðal gesta. Öll innkoma af dansdeginum rennur óskert til Barnaspítala Hringsins.
Sjá nánar hér