Barnaspítala Hringsins hafa verið afhentar 240 þúsund krónur að gjöf sem lagður var grunnur að á alþjóðlega veitingahúsadeginum, „open your own restaurant day", 16. nóvember 2013. Jessica Thomasdóttir seldi þá fiskisúpu og hvítlauksbraut fyrir framan Room with a view hótelið að Laugavegi 18. Fyrirfram hafði verið ákveðið að gefa allan ágóðann til góðgerðarmála og varð barnaspítalinn fyrir valinu. Alls söfnuðust 40 þúsund en það var kalt þennan dag sem kom líklega eitthvað niður á sölunni. Hóteleigandi ákvað því að bæta við upp í 240 þúsund!