Markmið samningsins er að skapa umgjörð og sérhæfða aðstöðu við HR og LSH fyrir kennslu, rannsóknir og þróunarverkefni á sviði heilbrigðisverkfræði m.a. með því að koma á fót heilbrigðistæknisetri. Setrið verður rekið sameiginlega á vegum LSH og HR og staðsett í húsnæði HR við Nauthólsvík. Þar verður rekin sú vísinda- og þróunarstarfsemi sem greininni er nauðsynleg og nýtist jafnt deildum LSH og HR. Heilbrigðisverkfræði hefur verið kennd við tækni- og verkfræðideild HR undanfarin 8 ár og hefur verið óformlegt samstarf milli aðila frá upphafi.
Samkvæmt samningnum mun Háskólinn í Reykjavík annast menntun háskólanema í heilbrigðisverkfræði og bera faglega ábyrgð á kennslu greinarinnar auk þess að standa fyrir rannsóknum á sviði heilbrigðisverkfræði. HR mun taka þátt í þróun á tækni og notkun hennar við lækningar, hjúkrun og aðrar greinar á Landspítala. Þá mun Landspítali koma að verklegu námi nemenda í heilbrigðisverkfræði við HR og leggja til húsnæði og aðstöðu fyrir þá meðan þeir eru í verknámi.
Samkvæmt samningnum skal stefnt að því að útvíkka samstarf Háskólans í Reykjavík og Landspítala þannig að það nái yfir fleiri starfssvið og aðila.
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala, og Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík undirrituðu samninginn í húsakynnum HR miðvikudaginn 13. nóvember 2013.
Páll Matthíasson: „Samningurinn er afar mikilvægur til þess að tryggja framþróun í heilbrigðisverkfræði, bæði hvað varðar tæknina sjálfa og þann mannauð sem nauðsynlegur verður til þess að sinna lækningatækjum og hvers kyns tækni til lækninga. Við á Landspítala fögnum því að vera virkir þátttakendur í þessari vegferð.“
Ari Kristinn Jónsson: „HR hefur i mörg ár átt mjög gott samstarf við Landspítala bæði í námi og rannsóknum en Landspítali hefur meðal annars verið bakhjarl náms í heilbrigðisverkfræði. Með þessum samningi festum við samstarfið í sessi og styrkjum það til framtíðar. Þetta er mikilvægt skref því þróun og nýting nýrrar tækni er stór þáttur í framþróun heilbrigðismála og því er mikilvægt að vel sé búið um þetta góða samstarf okkar um tækniþróun í þágu heilbrigðisvísinda.“