Blóðbankinn var stofnaður árið 1953 og hóf starfsemi sína við blóðsöfnun, geymslu og afgreiðslu blóðs þann 14. nóvember 1953 í sérhönnuðu húsnæði við Barónstíg í Reykjavík. Í maí árið 2007 flutti Blóðbankinn starfsemi sína að Snorrabraut 60 en hafði þá um 20 ára skeið búið við mikil þrengsli og óhagræði í húsnæðismálum.
Blóðbankinn sér um blóðsöfnun, vinnslu, prófun, geymslu og afgreiðslu allra blóðhluta fyrir íslenskt þjóðfélag þannig að öryggi blóðþega sé tryggt í hvívetna. Þjónustunet Blóðbankans er um land allt. Blóðbankinn er með starfsstöðvar í Reykjavík, Akureyri og í Blóðbankabílnum og styður einnig við starfsemi blóðstöðva sjúkrahúsa á landbyggðinni.
Á Íslandi eru tæplega 7.000 virkir blóðgjafar og safnar Blóðbankinn rúmlega 12.000 heilblóðseiningum á ári. Úr heilblóðseiningum eru unnir blóðhlutar svo sem rauðkornaþykkni, blóðvökvi (plasma) og blóðflögur. Að auki er safnað sérhæfðum blóðhlutum í blóðfrumuskiljum (aferesis) og eru um 300 einstaklingar sérhæfðir gjafar í aferesis og gefa meira en 1.000 blóðhluta með þeim hætti.
Á vef Blóðbankans, www.blodbankinn.is, er margvíslegt fræðsluefni um starfsemina. Þar er meðal annars hægt að lesa ágrip af sögu Blóðbankans sem Atli Sigþórsson, sagnfræðingur og rithöfundur, hefur skráð í tilefni afmælisins.
Afmælismóttaka 14. nóvember 2013 Móttaka blóðgjafa opin frá kl. 8:00-19:00 Móttaka í Blóðbankanum að Snorrabraut 60, 3. hæð kl.15:00-17:00. Allir velunnarar Blóðbankans velkomnir svo lengi sem húsrúm leyfir. Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir Blóðbankans, og Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segja nokkur orð |