Hringskonur komu í heimsókn á Barnaspítala Hringsins föstudaginn 8. nóvember 2013 og skoðuðu tækjabúnað sem keyptur hefur verið fyrir stórgjöf þeirra í tilefni af 70 ára afmæli Barnaspítalasjóðs Hringsins 14. júní 2012.
Þetta voru monitorkerfi, skoðunarbekki, Lapraskópíustæða, barka- og raddbandaspeglunartæki fyrir börn og blöðruómskoðunartæki.