Eftirtaldir listamenn koma fram og styrkja verkefnið:
Eyjólfur Kristjánsson, Gissur Páll Gissuararson, Hera Björk Þórhallsdóttir, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Lay Low, Páll Rósinkranz, Regína Ósk Óskarsdóttir, Þóra Einarsdóttir, Garðar Thór Cortes, Guðrún Gunnarsdóttir, Hulda Björk Garðarsdóttir, Kristján Kristjánsson (KK), Matthías Stefánsson, Ragnar Bjarnason og Stefán Hilmarsson.
Hljómsveitin Kaleo leikur.
Undirleikarar eru Jónas Þórir og Þorgeir Ástvaldsson.
Kynnir: Gísli Einarsson.
Aðgöngumiðar kosta 4.000 krónur. Miðasala er til 13. nóvember hjá N1 Ártúnshöfða, Bíldshöfða og Gagnvegi. Einnig hjá Olís Álfheimum og Gullinbrú.
Þetta er ellefta árið í röð sem Lionsklúbburinn Fjörgyn í Grafarvogi stendur fyrir tónleikum sem þessum og aðsóknin hefur alltaf verið mikil. Lionsklúbburinn Fjörgyn hvetur alla, sem tök hafa á, að tryggja sér miða á tónleikana og hlýða á marga af bestu tónlistarmönnum landsins í einni stærstu kirkju landsins við mjög góðar aðstæður, um leið og stutt er við gott málefni.
Smella á myndina til að stækka hana.