Guðný Friðriksdóttir hjúkrunarfræðingur var kosin nýr formaður hjúkrunarráðs Landspítala á aðalfundi ráðsins 23. október 2013. Eygló Ingadóttir hjúkrunarfræðingur gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Hjúkrunarráð Landspítala starfar í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu (nr. 40/2007) en í því eiga allir hjúkrunarfræðingar og ljósmæður spítalans sæti. Guðný er aðstoðardeildarstjóri á meltingar- og nýrnadeild 13E en hefur auk þess tekið þátt í ýmsum verkefnum innan og utan Landspítala. Hún lauk BS námi frá HA árið 1996 og MBA námi frá Háskóla Íslands árið 2008.
Leit
Loka